HTC ehf · Smiðjuvegur 4, 200 Kópavogur · Sími: 517-1773
Greiðslur og afhending
Hægt er að greiða með netgíró, bankamillifærslu eða greiðslukortum. Vara er afhent í verslun að Smiðjuvegi 4 eða send heim til kaupanda.
Sendingarkostnaður er breytilegur og fer eftir gjaldskrá sendingaðila. Alltaf er hægt að velja „sækja í verslun" og bætist þá enginn sendingarkostnaður við.
Afhendingartími
Eftir að pöntun berst pantum við vöruna frá vöruhúsi okkar í Evrópu. Áætlaður komutími til Íslands er 7–14 dagar. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og gefa upp áætlaðan afhendingartíma eða bjóða sambærilega vöru.
Ef vara kemst ekki til okkar innan 14 daga frá pöntun er þér heimilt að falla frá kaupum og fá endurgreiðslu að fullu.
Skilaréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin, að því tilskildu að varan sé ónotuð og skilað í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent.
Tilkynnið um skil með tölvupósti á xxx@xxx.is. Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og verslað var fyrir, eftir að vara berst til HTC ehf.
Ábyrgð
Vörur hafa mismunandi ábyrgðartíma. Smátæki (gadget) hafa almennt 3 mánaða ábyrgð og hálf ábyrgð í 3–6 mánuði. Ábyrgð er bætt með sömu eða sambærilegri vöru.
Verð og skattar
Öll verð eru með VSK. Verð geta breyst án fyrirvara.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila, nema að undangengnum dómsúrskurði.
Ágreiningur
Komi upp ágreiningur má leita til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa · Borgartún 29, 105 Reykjavík.